Life is short... so live it up

15.02.2007 14:10:45 / gretajons

PARTÝ PARTÝ :)

Hæ hó! Mér datt í hug að skella inn partý-auglýsingunni sem var á Skutlusíðunni með hérna, svona ef einhver fer ennþá inn á þessa blessuðu síðu mína...  ;)

 

Jæja gott fólk!

Þar sem við systur erum svo ótrúlega partýglaðar ætlum við að halda saman upp á afmæli og útskrift núna á laugardaginn… alltaf gaman að finna eitthvað tilefni til að halda stórt partý ;)  

Herlegheitin verða haldin í Veiðiskálanum í Lambhaga, rétt utan við gömlu Skaga-vegamótin. Svona ratið þið: Þið beygið til hægri inn í Hvalfjörð og svo rétt bráðum til vinstri inn í Lambhagahverfið. Keyrið þar svo bara beint í gegn og veiðiskálinn er þar á endanum (sést ekki frá þjóðveginum). Eltið bara blöðrurnar tíhíhí :lol:

Þarna eru víst alveg 12 svefnherbergi þannig að allir ættu að geta lúllað saman. Höldum að það þurfi samt hver að koma með sína sæng/svefnpoka. Annars er nú líka stutt upp á Skaga, líklega korter, fyrir þá sem kjósa sitt rúm. Svo er líka heitur pottur og allur pakkinn, gaman gaman ;)

  

Allir vinir og vinkonur meira en velkomnir, the more the merrier. Makar velkomnir :haha:

 

Mæting er bara svona þegar þið viljið, eða segjum bara upp úr kl. 20, en við verðum allavegana mættar vel fyrir kvöldmat. Bolla í boði, fyrstir koma fyrstir fá :haha:

OfurskutluᲳhᴭ𠱴 jan '06 049

Og svo síðast en ekki síst þá viljum við endilega að þið komið með skemmtiatriði... t.d. getur Bára sungið heheh ;)

 

Hlökkum ótrúlega til að hitta ykkur öll saman og allir að muna eftir góða skapinu! :haha::haha::haha:

 Gréta ellismellur og Ólöf líffræðingur

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 16:40:31 / gretajons

Hálf brenglað eitthvað...

Í alvöru, skoðið þetta :!: Stelpur ykkur líður betur eftir á haha ;)

Væri ekki slæmt að hafa svona bjútí-hjálparkokka

http://www.campaignforrealbeauty.ca/bblank.asp?id=6895  

Ó já, svona er þetta víst gert :S

En annars var sumarbústaðaferðin alveg glimrandi fín, mikið af fyndnum og nördalegum mómentum... Gæti sett inn svooooo nördalegar myndir (haha sérstaklega af Heiðari!) en er að spá í að hlífa liðinu við því ;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 20:46:56 / gretajons

Ég er á lífi...

Góðan daginn sagði gæinn og þá sprakk í honum maginn!

Jamm og já, langt síðan síðast, blog.central.is bara stórbreytt síðan ég kom hingað inn í vefstjórn síðast, er ekki mikið fyrir svona tölvubreytingar hummm, þarf að venjast því... :S Annars já er hún Sigga mín á landinu, þökk sé mér vúhúú, og liggur leiðin í bústað um helgina :haha: Búin að fá frí í vinnunni og allt, þannig að þetta verður alveg eðall í góðra vina hópi. Hlakka sko ekkert smá til, finnst alltaf svo geggjað gaman í svona bústaðaferðum. Sigga snilli líka búin að lofa skemmtidagskrá og partýleikjum hehe (giska á bank-bank af því við erum svo ólýsanlega kúl og þroskaðar!) :haha:

En já hef ekkert brjálað mikið að segja núna, bara gaman að lifa og allt það, vildi bara sýna smá lit og skella inn færslu svo Bára hafi eitthvað að gera meðan hún er að tjilla hérna á klakanum hehe ;) Er einmitt að skella mér í heimsókn til skvísunnar, veriði sæl að sinni ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 10:32:49 / gretajons

Hún á afmæl'í dag......... :)

Til lukku með daginn Ólöf mín !!! :haha:

Hérna er hún sæta systir mín í góðum partý-fíling eins og oft áður ;)

100 0379

... og svo varð ég bara að hafa þessa kreisí mynd með, sá hana þegar ég var í þvílíkum flýti að leita að mynd af systu, tekin á ofurskutluárshátíðinni... djöööööfull hefur Mikael verið sáttur við þessar súlu-stelpur hahaha! ;)

OfurskutluᲳhᴭ𠱴 jan '06 083

adios amigos! Sé ykkur vonandi sem flest á Höfðabrautinni á morgun :D


» 14 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 22:36:12 / gretajons

Rólegasta helgi ever!

Halló elskurnar mínar, hvað er títt? ;) Vá hvað ég er búin að eiga morkna helgi, en það er líka voða nice svona inn á milli... Annars lítið af fréttum, er byrjuð á fullu á rannsóknarverkefninu og er alveg bara loving it! Er svo glöð yfir að mér finnist þetta svona gaman og spennandi, hlakka bara til að fara í vinnuna á morgun þótt það sé grár og gugginn mánudagsmorgunn. Kreisí vika framundan, er að fá fullt af fólki til mín í viðtöl og svona, voða gaman :haha:

En ætla að vera öflugri næstu helgi, en þá er víst ball á Jaðarsbökkum og ætla skötuhjúin þau Ólöf og Elvar að halda afmælispartý saman, hlakka til :) En jæja ætla að fara að kóróna rólegheitin og fara að kúra mig undir sæng og lesa bók hahaha..

Sú morkna kveðjur að sinni... ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 22:31:21 / gretajons

Margt skrítið í kýrhausnum eins og þeir segja ...

Var að lesa í hestablaði (Eiðfaxi heitir það fyrir áhugasama hehe) að það er verið að fara að opna allavegana 2 hestasundlaugar. Svo sem allt gott og blessað um það að segja, fín æfing fyrir þá og allt það og þetta þekkist alveg í úglöndunum... en svo las ég áfram og missti næstum úr mér augun af því að í einni sundlauginni eiga að vera hlaupabretti fyrir hesta :!::!::!: Og svo var meirað segja mynd af hesti að "skokka" á brettinu! Eitthvað mikið mikið bogið við þetta ... :S


» 10 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 21:29:26 / gretajons

Tímamót...

Er með pínku hnút í maganum núna því að á morgun er stelpan að byrja á doktorsverkefninu! Mér finnst það svo skrítið.. eitthvað svo fullorðins að það hræðir mig eiginlega smá :$ En auðvitað líka voða spennó finnst mér og eitthvað sem maður hefur alltaf stefnt að ;)  En verð semsagt líklegast að vinna á RÍN, rannsóknarstofunni í næringarfræði, næstu fjögur árin allavegana takk fyrir frans, þannig að þegar ég verð svona 28-29 ára mundi ég vilja að allir færu vinsamlegast að kalla mig Doktor Margrét hahaha! ;)

En jæja ætla að fara að pilla mér heim og glugga eitthvað aðeins í bækurnar svo ég mæti ekki á morgun eins og einhver algjör illi... Er hjá Aldísi systur og búin að vera að hlusta á hvern gullmolann á fætur öðrum hjá yndislegum frænkum mínum, þær eru svo mikið æði! Jemundur sko.. ein smá saga (sem samt örugglega bara mér og Ólöfu finnst fyndin!), vorum eitthvað að ræða kærastamálin í leikskólanum í gær og þá sagði Salka 3 ára, sko Gréta ég er sko ástfangin af Benedikt Júlíus og ætla sko að giftast honum. Og þá sagði Sóley, en Gréta veistu hann Björgvin hann er sko ástfanginn af bæði Róbertu Lilju og Oddný en hann ætlar ekki að ákveða hvorri hann ætlar að giftast fyrr en hann verður fullorðinn! og var ekkert smá hneyksluð á honum sko hehe, greinilega miklar pælingar í gangi um ástarmálin í leikskólanum ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 21:34:50 / gretajons

Aldrei þynnka í'essu..????

Jæja helgin liðin og kominn tími til að skrifa um eitthvað annað en "mig langar svo til úglanda" væl... :S  Var reyndar að vinna alla helgina en gerði samt helling.. kaffihús, afmæli og svo mörkin með crazy bræðrunum mínum og ennþá klikkaðri systur á föstudaginn. Reynir bró rugludallur, a.k.a tv-star haha, er núna farinn aftur til Sverge búhúúú en hann mætti sko með látum í kokkabúning á mörkina, kjánaprik ;) Svo var menningarnóttin tekin með Fríðu og Báru, og ég bara verð að koma því að hvað það voru eeeendalaust góð lög á Kofanum, algjör snilld!

Merkilegt samt hvað ég slepp alltaf ótrúlega vel við þynnku, er alltaf bara svo hress daginn eftir djamm þótt ég kannski sofi drullulítið og fari svo í vinnuna þar sem maður er sko alveg á skrilljón, en maður er nú hvort eð er yfirleitt svo dannaður í drykkjunni (ja ég samt veit ekki alveg....) og kann sín takmörk (eða er það....)... Haha vá hvað ég var örugglega pirrandi þegar ég bjó með Fríðu og var alltaf að farast úr hressleika daginn eftir nánast hoppandi í rúminu og hún kannski alveg að drepast úr þynnku grey skinnið! Heiðar og Mikael kannast kannski við þetta hehe (Hugs hugs.. sakna Meistaravallanna!) En ég er samt alltaf að bíða eftir að þessi þynnka fari einhvern daginn að koma í heimsókn, er ekki sagt að maður verði alltaf meira og meira þunnur með aldrinum?? :S Og stórtíðindi, stelpan keypti sér BJÓR á barnum, meirað segja tvö stykki! Hvað er að gerast... 


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 01:26:55 / gretajons

Útþrá.......

Lítið að frétta..... langar aftur til úglanda! 8|

....hver segir að interrail sé eitthvað sem maður þurfi bara að prófa einu sinni á ævinni... ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 18:09:08 / gretajons

Home sweet home....

Babarammm... komin heim í rigninguna, æðislegt að koma heim en ég færi nú samt alveg á flakk aftur á morgun ef ég bara gæti, veit um tvær sem væru sko til í það líka! ;) Ég varð bara að bæta inn nokkrum myndum frá henni Krissu, kann nú voða lítið á þetta, þessar myndir láta sko ekkert að stjórn en höfum þetta bara svona ;)

Og já kannski að ég láti fylgja með löndin sem ég er búin að fara til í sumar, svona summary hehe djók, já ég er nörd......

Svíþjóð - Danmörk - Þýskaland - Tékkland - Austurríki - Ungverjaland - Rúmenía - Búlgaría - Tyrkland - Grikkland - Makedónía - Serbía - Bosnía - Króatía - Slóvenía - Ítalía - Frakkland - Monaco - England......

19 lönd á 9 vikum..... ekki amarlegt það..... :haha:

Og ja hérna eitt enn, þegar ég og Karen vorum að fara að taka undergroundið í London í gær þá var bara allt lokað af því að einhverjum hafði verið hent fyrir teinana! Ja hérna.... og svo er allt vitlaust þar í dag á flugvöllunum, eins gott að við komumst heim í gær... 8|

 

 

 

  

 

    

 

           

                

    

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

OHHHHH SVO GAMAN..... !!!!!!!!!!!!!!!!!

....Og djamm hjá Kollu á morgun, hlakka ekkert smá til :haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 08:52:27 / gretajons

Og leidin liggur heim..........

Jamm og ja nuna er tessu vist bara ad ljuka, vid Karen forum heim a morgun... reyndar fyrst til London (vonandi samt ekki til ad eyda peningum sjetturinn...:S). En erum bunar ad hafa tad hrikalega gott og gaman herna saman, er buin ad fara med hana ut um allt, t.d. til Cannes og svo vorum vid i Monaco i gaer sem var sko algjort aedi, tid sjaid tad a myndunum tegar eg set taer inn, allt tarna svo otrulega fint og flott ad tad var half surrealiskt... En ja talandi um myndir ta er Krissa buin ad setja inn eitthvad af sinum en tid getid skodad tad herna:

http://picasaweb.google.com/kristjana.gudjonsdottir/GglNdin

ufff eg fae alveg saeluhroll vid ad skoda taer... langar aftur !!! :cry::cry::cry:

En jaeja aetla ad fara upp og vekja hana Kareni, hun er ennta sofandi heillin, aetludum ad fara i gaer a salsa club en endudum a irskum pub og tar var sko bara rosa gaman :!: Aetludum reyndar ad fara herna a strondina i Nice i sidasta sinn i dag en svo er bara skyjad, veit ekki alveg hvad tad a ad tyda en vid gerum bara eitthvad annad skemmto i stadinn ;) Hlakka hrikalega til ad hitta alle sammen heima, vona ad sem flestir hafi heilsu til ad fara a djammid naestu helgi ;)

Turilu !!! :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 19:23:24 / gretajons

C'est la vie! :)

Saelinu! Vist kominn timi a faerslu... :S Buin ad hafa tad rosa gott herna i blidunni, herna er svona 34 stiga hiti alla daga, sol og blida, kannski full heitt sko en tad er bara god afsokun fyrir tvi ad hanga a strondinni og stokkva i sjoinn inn a milli til ad kaela sig ;)

Buin ad gera margt og mikid sidan sidast, t.d. fara til Nice og Cannes og profa fullt af fleiri strondum herna i Antibes hehe og svo forum vid i gaer naestum tvi a Placebo tonleika haha, tad voru sko utitonleikar vid strondina og vid satum bara nokkur a strondinni beint fyrir aftan svidid og hlustudum a, mjog gaman ;) Og svo reddadist tetta alveg med herbergisfelagann an tess ad eg tyrfti eitthvad ad vera leidinleg, var sko buin ad vera med i maganum ut af tvi hvad eg aetti eiginlega ad segja vid hana en ut af plassleysi ta var hun flutt til fjolskyldu og eg fekk nyja stelpu, 17 ara fra London, semsagt alveg andstaedur hehe en miklu audveldara ad bua med henni. Reyndar a ad flytja okkur badar eitthvert naestu helgi, veit ekkert hvar eda med hverjum eg lendi ta, tetta er allt svona frekar skritid system hja teim...

En jaeja a ad vera med halftima kynningu a morgun um Island :S tannig ad eg tarf ad fara heim og undirbua mig! Erum svo ad fara ad gera eitthvad skemmtilegt annad kvold, aetlum ca atta ad fara saman ut ad borda og a djammid, sidasti dagurinn hennar Jenny (breska/tyska stelpan) :cry: ... En svo kemur Karen bara eftir viku, va hvad eg hlakka til! Og svo forum vid saman heim vikuna a eftir... Er farin ad sakna folksins mins en aetla ad njota sidustu daganna herna alveg i botn, tetta er svo aedislegur stadur :)  

Tar til naest....... ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 19:50:23 / gretajons

voulez-vous coucher avec moi ce soir...? ;)

Hae hae er ad drifa mig alveg otrulega mikid en aetla samt ad skella inn einni faerslu, nenni svo sjaldan ad fara a netkaffi... :S

En ja allt tad finasta ad fretta hedan ur Frakklandi, reyndar leyst mer nu ekkert of vel a tetta fyrstu tvo dagana ef eg a ad segja eins og er, tekkti fyrst natturulega engann og svo vantar soldid folk herna a minum aldri (semsagt besta aldri hehe), langflestir herna eru 18-19 ara eda ta 28 ara og eldri :S Og svo er eg nu ekkert serstaklega heppin med herbergisfelaga, hun er 28 ara en gaeti alveg verid svona sextug, er fra Sviss og talar enga ensku og jafnvel enn verri fronsku en eg tannig ad oll samskipti eru frekar mikid erfid... en ja svo er eg bara buin ad kynnast tessu lika finasta folki, serstaklega einni stelpu sem er bresk/tysk og vid hongum saman allan daginn, er reyndar ad fara ad flytja mig yfir til hennar svona haegt og rolega... Vil ekki vera leidinleg vid konuna (ja konuna, ekki stelpuna) sem er med mer i herbergi en tad er bara svo erfitt ad bua med henni... aejjj greyid, svo hangir hun inni og laerir aaaaaallan daginn og fer ad sofa kl. 10, grey grey...

En annars er tetta yndislegur baer og eg kann betur og betur vid mig. Roltum i skolann a morgnana og er tar til kl.16, ta forum vid a strondina 8) Er ad fara nuna a djamm her i Antibes med krokkunum i skolanum, er ad verda alltof sein tvi eg a eftir ad fara heim og skola af mer sjoinn og sandinn :S Og busy helgi framundan, aetlum ad fara nokkur til Cannes a morgun og svo til Nice a sunnudaginn :haha: Semsagt voda nice life ;)

Svo er min heittelskada Karen ad koma i heimsokn til min 3. agust og svo forum vid saman heim tann 9. tannig ad tad styttist i ad tetta aevintyralega sumar mitt taki enda....  En jaeja got to go... Hafid tad gott min kaeru ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 18:40:42 / gretajons

Interrailid buid... GRENJ GRENJ GRENJ ......

Jaeja... Nuna er eg komin til Frakklands og besti manudur aevi minnar lidinn :cry::cry::cry: En hvert var eg nu komin i sogustundinni.... ja einmitt forum til Skopje i Makedoniu og vorum held eg einu turistarnir a svaedinu liggur vid, gerdumst svo fraegar ad fara tar i sund og skola af okkur skitinn, mjog spes upplifun, engir kalla- og kvennaklefar og svo turfti ad borga klink i sturtuna og hlaupa undir i 1 min ;) En ja halda afram.... uuu forum svo aftur med naeturlest til Belgrad i Serbiu og eyddum tar einum degi, mjog svona gra borg (enda ekki skritid kannski) en okkur tokst nu samt ad versla sma, gleymdum okkur adeins og turftum ad hlaupa um alla Belgrad til ad missa ekki af lestinni en svo tegar vid maettum a stodina var naestum 6 tima seinkun takk fyrir!

Vid hofdum mikid verid ad spa i hvert vid aettum ad fara naest tvi Sarajevo var ut ur myndinni vegna tess ad tad hefdi tekid okkur solarhring ad komast tangad :( Vid stollur komumst sidan ad nidurstodu um ad fara bara beint til Ljubljana i Sloveniu en medan vid vorum ad hanga a stodinni kynntumst vid 4 irskum gaurum sem voru vaegast sagt otrulega skemmtilegir. Og eiginlega eins og vid 7 hefdum alltaf tekkst, smullum svona lika vel saman. Tannig ad.... ja planid breyttist, vid stelpurnar vorum bara otrulega wild og hoppudum ut ur lestinni i Zagreb i Kroatiu og forum med teim a flakk um Kroatiu ta 5 daga sem eftir voru af interrailinu okkar. (Slovenia bidur bara betri tima... ;)). Held eg hafi aldrei hlegid jafn mikid a aevinni og tessa fimm daga! :haha:

Vid byrjudum a ad fara til Split, leigdum tar bil og keyrdum strandlenguna i 4-5 tima til Dubrovnik, oturlega falleg leid, og ligga ligga lai eg fekk ad keyra! Teir voru ekki med okuskirteinin sin hehe. Keyrdi meira ad segja gegnum landamaerin i Bosniu 8) Forum sidan til fleiri baeja a leidinni upp alla Kroatiu, djommudum oll kvold og hofdum tad bara ogedslega gaman saman haha. En svo skildust leidir i Rijeka i Kroatiu tar sem eg og Helena kvoddum Krissu og strakana, Krissa var ad fara til Parisar ad hitta Vigga sinn en eg og Helena forum i 2 daga til mommu hennar og pabba, tau leigdu sumarhus rett vid slovensku landamaerin. Vorum tar i dekri og svo var onnur kvedjustund buhu :cry: tegar eg kvaddi Helenu i Trieste i Italiu tadan sem hun flaug heim en eg tok lestina ein til Feneyja og var tar i einn dag. Feneyjar = aedi paedi! Hrikalega spes og falleg, aetla potttett tangad aftur (veit ekki hvad eg er samt buin ad hugsa tad um marga stadi sem vid hofum farid til hehe.....)

Og ja svo tok eg naeturlest til Nice i Frakklandi og hingad er eg komin ein og yfirgefin til Antibes a fronsku rivierunni tar sem eg tykist aetla ad laera fronsku i eins og 1 manud ;) Byrjar meira ad segja vel, buin ad fara i fullt af budum i dag hehe og tala fronsku ;) Samt mjog skitid ad vera herna ein, tad er audvitad sunnudagur i dag tannig ad eg er ekki buin ad hitta salu ur skolanum og buin ad vera bara herna ad bagslast eitthvad ein, skoda baeinn og strondina og svona en tetta verdur orugglega fint, bara skritid ad vera allt i einu einn eftir allan hamaganginn.... Tad var ekki laust neitt einbyli tannig ad eg deili herbergi med einhverri stelpu sem ja aetti ad vera komin nuna, best ad eg fari heim og heilsi upp a hana, vona ad tad se i lagi med hana, juju hun hlytur ad vera agaetis grey ;)

En i alvoru ta er eg bara midur min ad interrailid skuli vera buid... Eg get ekki lyst tvi hvad tessi manudur er buinn ad vera ooooooootrulega skemmtilegur og mikil upplifun, svo erum vid lika bara bunar ad laera helling a tessu og maeli eg sko potttett med ad allir skelli ser tvi tetta er ekkert flokid, eina sem tarf ad gera er ad kaupa ser passa og pakka nidur i tosku, tad tarf ekki ad akveda neitt tvi madur mundi hvort ed er orugglega ekkert standa vid tad plan.... Eina sem tarf er godur felagsskapur og tad er sko eitthvad sem mig vantadi ekki! Stort knus til elsku Helenu og Krissu !!!! En va nuna er eg ad fara ad verda vaemin tannig ad eg aetla ad segja tetta bara gott i bili... Lika spennandi ad vita hvort eg se ad fara ad bua med einhverju skrimsli eda einhverju yndi heheh djok :lol: Og svo fyrsti skoladagurinn a morgun.... spennandi ..... :S

En jaeja bless i bili elskurnar minar, tid sem nenntud ad lesa tessa langloku ;)

Au revoir! ;)

ps. tid getid fylgst med sidunni hennar Doktor Helenu ef tid viljid skoda myndir, hun aetladi ad setja taer inn bradum, minar koma ekki fyrr en eftir manud ;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 10:23:08 / gretajons

Acrapolis eftir 5 min....

Saelinu! Nuna erum vid staddar i Athenu, margt buid ad gerast sidan sidast... Maettum til ISTANBUL eldsnemma um morguninn (einhvern timann um daginn, allt timaskyn farid her, vikudagar og dagsetningar skipta engu mali hja okkur ;)). Vissum ekki rassgat hvar vid attum ad fara ut, hvar vid vorum, hvad vid vorum ad fara ad gera, hvar midbaerinn var og hvernig vid kaemumst tangad, hvert vid vaerum naest ad fara og hvernig hehehe.... uuuu svosem ekkert nytt hja okkur hehe en kannski maetir madur ekki tannig til Istanbul :$ en tetta blessadist allt saman :haha: Forum a einhverja rutustod og keyptum okkur far til Marmaris somu nott og svo eyddum vid deginum i Istanbul a Grand Bazar tar sem eru 4500 budir (shit eg var ad verda gedveik a lidinu tarna.... special price for you my Icelandic friend... hi I love you, come and buy..... en bara fyndid) og svo forum vid nidri bae ad skoda The Blue Mosque og fleira fallegt :)

Naestu nott beid okkar svo 14,5 tima rutuferd (uffaluffa sko) til MARMARIS jey jey jey, hittum Aldisi, Binna og litlu snullurnar minar sem voru sko knusadar i klessu i nokkra daga, og svo voru Olof og Elvar tarna lika og Raggi og Sigrun, voda gaman gaman :haha: Tar var bara legid a strondinni i nokkra daga og workad tanid, timanum eytt med aedislegu folki, bordad godan mat, sofid i godu rumi og leikid vid Soley og Solku ;) Svo a sunnudeginum forum vid i 8 klst snekkjuferd i 45 stiga hita og golu, tad var sko aedislegt !!! Manni leid bara eins og prinsessu, algjort dekur sko ;)

En morguninn eftir forum vid svo med ferju til Rhodos tar sem vid eyddum deginum i turistabaeli daudans en forum svo seinnipartinn med naeturferju til ATHENU :) Vorum ogedslega niskar og timdum ekki ad kaupa okkur kaetu tannig ad vid svafum bara i svefnpoka a golfinu! 8| Komum svo til Athenu i gaermorgun og skodudum Olympiuleikvanginn og roltum bara um og svona, voda flott, og svo erum vid ad fara ad skoda Acrapolis :haha:

Forum svo i nott med naeturlest til SKOPJE i Makedoniu og vonandi komumst vid svo tadan gegnum Serbiu til Sarajevo i Bosniu ;) Seinni tima vandamal eins og alltaf en einhvern veginn hefur tetta alltaf lukkast otrulega vel hja okkur, taka bara einn dag i einu og tad blessast alltaf, erum lika svo otrulega klarar sko ;)

En tar til naest.... vonum ad vid lendum ekki i einhverri sprenjuaras i Sarajevo 8| neinei segi bara svona ;)

Turilu !!! :haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2